Valur Gunnarsson
About
Valur Gunnarsson fæddist í Reykjavík og ólst upp í Noregi, í Bretlandi og á Íslandi, auk þess sem hann eyddi sumrum sínum á unglingsárum í Sadí-Arabíu og Kína. Hann útskrifaðist með MA gráðu í ritlist frá hinum virta Queen‘s University í Belfast árið 2003 og tók þá þátt í stofnun blaðsins Reykjavik Grapevine.
Fyrsta skáldsaga Vals, Konungur norðursins, kom út árið 2007 og sú næsta, Síðasti elskhuginn, árið 2013. Hann er nú að klára MA nám í sagnfræði við Háskóla Íslands þar sem hann fæst við rannsóknir á óreiðukenningunni og hvernig veröldin hefði getað þróast ef atburðir hefðu orðið öðruvísi.
Links: