Samtal við grænlenska rithöfunda
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Sun Nov 22 2026 12:00
Grænlensku rithöfundarnir Arnaq Johansen og Uilu Pedersen eru meðal gesta Bókahátíðarinnar í Hörpu í ár.
Uilu hlaut í haust Barna - og ungmennabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins fyrir bókina Pilu þar sem náttúra, þjóðtrú og menning Grænlands verður efniviður í ævintýri um hugrekki og sjálfsþekkingu.
Arnaq Johansen skrifaði og ritstýrði bókinni Uangaana timiga sem þýðir Minn líkami á Íslensku. Í bókinni er talað við tíu grænlenskar konur um reynslu þeirra af því þegar getnaðarvörnin lykkjan var sett upp að þeim forspurðum á barnsaldri að tilskipun danskra stjórnvalda.
Arnaq og Uilu lesa úr verkum sínum á grænlensku og verður blöðum með þýðingum dreift til áheyrenda. Síðan mun Julia Kristine Isaksen ræða við þær á grænlensku og þýða bæði spurningar og svör jafnóðum á íslensku.
Viðburðurinn er styrktur af Vestnorræna höfuðborgarsjóðnum.