Opnun bókahátíðar í Hörpu
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Sat Nov 21 2026 11:20
Verið velkomin á opnun Bókahátíðar í Hörpu.
Þar leikur Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar fjörug lög og vinirnir Sólon og Dimma dúskur heilsa upp á unga gesti.
Að setningu lokinni hefst svo hátíðin með fjölbreyttri dagskrá. Rithöfundar lesa úr verkum sínum, spjalla við lesendur, bókmenntadagskrá og ýmislegt fleira verður til skemmtunar.
Dagskrána má sjá hér:
Laugardagur
11:20 Sólon, Dúlla dúskur og Skólahljómsveit V&M
11:50-12:20 Samtal við færeyska rithöfunda í Rímu
12:00- 17:00 Lesið úr nýjum bókum á Norðurbakka
12:00- 16:00 Lesið úr nýjum barnabókum í Stemmu
12:20-12:50 Samtal við finnska rithöfundinn Susönnu Hast í Rímu
13:00-16:00 Dagskrá á vegum menningardeildar Morgunblaðsins
16:00-16:30 Samtal við skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan
16:00-17:00 Lesið úr nýjum ungmennabókum í Stemmu
Sunnudagur
12:00- 17:00 Lesið úr nýjum bókum á Norðurbakka
12:00-12:40 Samtal við grænlenska rithöfunda í Rímu
12:30- 16:00 Lesið úr nýjum barnabókum í Stemmu
12:50-15:00 Lesið úr ljóðum og leikritum í Rímu
15:00-17:00 Þýðendur segja frá verkum sínum í Rímu