Áfallajóga 3: samhæfinga- og krossæfingar

Áfallajóga 3: samhæfinga- og krossæfingar

Online event, ,

Sat 05.09.2026 09:00

Áfallajóga 3: endurmenntun er sérhæft námskeið sem fer fram 5. september kl. 9–13 og er ætlað þeim sem vilja dýpka þekkingu sína og færni í áfallajóga. Á námskeiðinu verður lögð sérstök áhersla á samhæfingu hreyfinga, krossæfingar og þróun jafnvægisskyns með tilliti til áfallamiðaðrar nálgunar.

Þátttakendur fá bæði fræðilega innsýn og hagnýtar æfingar sem styðja við örugga og meðvitaða líkamsvinnu. Lögð er áhersla á að skilja hvernig þessir þættir geta styrkt taugakerfið, aukið líkamsvitund og stuðlað að betri líðan.

Námskeiðinu fylgja upptökur af æfingum sem þátttakendur geta nýtt sér eftir námskeiðið til frekari æfinga og samþættingar. Ekki þarf að hafa lokið áfallajóga 2 framhaldsnám til að sækja þetta námskeið.

Performers

  • Karma Jógastúdíó
    Karma Jógastúdíó

    Fjölbreytt námskeið í jóga og heilsutengdum málum fyrir alla. Sérhæfum okkur í endurmenntun fyrir jógakennara. Yoga Alliance viðurkenndur skóli.