Núllstilla Líkamann

Núllstilla Líkamann

Happy Hips, Kirkjulundur 19, 210 Garðabær Directions

Tue 11.08.2026 18:30

BANDVEFSNUDD - DJÚPÖNDUN - MJÚKT HREYFIFLÆÐI - TEYGJUR - SLÖKUN !

Þegar við núllstillum styrkjum við öll grunn kerfi líkamans og sköpum JAFNVÆGI. Heildræn nálgun - blóðrás, sogæðakerfið, stoðkerfi, melting og innkyrtlakerfi nær jafnvægi og vinnur saman í að styrkja og viðhalda innra jafnvægi/HOMEOSTASIS!

💥 Viltu læra hvernig ÞÚ getur bætt umhverfið innra með þér svo að líkaminn geti gert við sig sjálfur 🔋🧠🧬

💥Viltu læra skilvirka tækni til þess að;

-🔋draga úr stress og streitu.

-🔋minnka liðverki og bjúg.

-🔋vinna á stoðkerfisverkjum.

-🔋bæta meltinguna.

-🔋auka svefngæði.

-🧠 minnka höfuðverk, pirringi og þokukenndar hugsanir.

-🔋minnka þreytu og slen.

-🔋efla til muna ónæmiskerfið.

-🔋auka blóðflæði og vökva vefjakerfið.

Þjáist þú af krónískum bólgum og stoðkerfisverkjum, kvíða, svefntruflunum, höfuðverk, vöðvabólgu og/eða meltingartruflunum?

Þessi einkenni geta gefið til kynna að líkami þinn hafi gott af smá núllstillingu með því að losa stíflur í sogæðakerfinu, stilla taugakerfið og losa um spennu til að geta sinnt almennilega viðgerðarþjónustu og viðhaldi frumna í líkamanum.

Með því að styrkja taugakerfið skapast jafnvægi í orkubúskap líkamans og meðvitund okkar um líkamann eykst, sjálfsvitund eflist og styrkist.

-NÁMSKEIÐIÐ ER NÚ 8 VIKUR OG OPIÐ Á EFNIÐ 3 MÁNUÐI ÞAR Á EFTIR - náum að fara betur og hægar yfir efnið og iðkendur ná betra taki á æfingum!

Á námskeiðinu förum við yfir

-Hvernig sogæðakerfið virkar og hvernig við getum opnað á helstu rásir þess.

-Hvað er flökkutaugin og hvernig virkar hún. Hvað getum við gert til að virkja og styrkja þessa mikilvægu taug.

-Notum hreyfiflæði og boltanudd til að vinna í stoðkerfi líkamans. Finna hvar okkar ójafnvægi liggur og hvar við þurfum að opna á eða styrkja svæði.

-Hreint mataræði og venjur til að auka betri meltingu. Frá Ásdísi Grasalækni.

Áhersla er að losa um spennu sem oft stelur frá okkur orku. Með því að rúlla og þrýsta á þessi spennusvæði koma fram jákvæð áhrif á orkukerfið, blóðrásarkerfið, sogæða- og ónæmiskerfið og uppskeran er slökun og jafnvægi.

Fyrsti tíminn þriðjudag 11. ágúst 18:30.

1x i viku í 8 vikur - ÞRI 18:30

AÐGANGUR AÐ ÖLLU EFNI 3 MÁNUÐI EFTIR NÁMSKEIÐI LÝKUR.

Kennari: Sigrún Haraldsdóttir, Eigandi og höfundur.

Hvar: Garðabæ, Kirkjulundi 19

Staðarnámskeið verð: 28.900kr

Netnámskeið verð: 24.900kr

SKRÁNING: https://happyhips.is/nullstilla/

Performers