Að vaxa í leik - hlutverk foreldra í þroska barna

Að vaxa í leik - hlutverk foreldra í þroska barna

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Tue 08.12.2026 20:00

Hlutverk foreldra í þroska barna er stórt og því mikilvægt að staldra við og skilja:

💛 Hvers vegna leikur er lykill að námi og þroska

💛 Hvernig börn læra og þroskast í gegnum dagleg samskipti

💛 Hvert hlutverk foreldra er í að styðja við sjálfstæði, tilfinningar og félagsfærni

💛 Hvaða einföldu leiðir geta nýst strax heima

Með allt á fleygiferð er mikilvægt að skilja hvernig við styðjum sem best við þroska barna í gegnum leik, tengsl og daglegt líf.

Markmið fræðslunnar er að styrkja foreldra í einu mikilvægasta hlutverki lífsins, að styðja barnið sitt með hlýju, nærveru og skilningi.

Fyrirlesari er Katrín Ruth Þorgeirsdóttir

Ráðgjafarþroskaþjálfi hjá menntasviði Reykjanesbæjar

Katrín hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum og fjölskyldum, meðal annars í leik- og grunnskólum, félagsstarfi og ráðgjöf.

Hún er einnig skyndihjálparkennari og leiðbeinandi í sálrænni skyndihjálp og öryggi og björgun.

Fræðslufundurinn er í streymi fyrir félagsfólk ADHD samtakanna inni á facebook síðunni ADHD í beinni. Árgjald samtakanna er 3950 kr og hægt er að ganga í samtökin hér: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Performers